Árið 2012 var þriðja starfsár Framtakssjóðs Íslands og nam hagnaður af starfsemi sjóðsins 6.111 milljónum króna, samanborið við 2.343 milljónir króna árið áður. Heildareignir sjóðsins í árslok námu 29,6 milljörðum króna en þær voru 28,2 milljarðar á sama tíma 2011. Eigið fé í árslok var 29,5 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall 99,6%.
Eignarhlutir sjóðsins í fyrirtækjum eru færðir á kostnaðarverði nema eignarhlutir í skráðum félögum sem eru metnir á markaðsverði. Hagnaður Framtakssjóðsins á árinu skýrist því af hækkun markaðsvirðis Icelandair Group, söluhagnaði af hlutum í skráðum félögum og sölu Plastprents. Sjóðurinn hefur, í samvinnu við endurskoðendur félagsins, lagt mat á áætlað gangvirði eignarhluta félaga í eignasafni sjóðsins og er metið að það sé ekki undir 46,7 milljörðum króna, en bókfært verð sömu eigna er 29 milljarðar króna. Áætlað virði miðast við niðurstöður virðisrýrnunarprófa undirliggjandi eigna.
Þær breytingar urðu á eignasafni sjóðsins á árinu 2012 að Plastprent var selt, 7% hlutur í Icelandair og 60% hlutur í Vodafone (Fjarskipti hf.) samhliða skráningu félagsins í Kauphöll Íslands. Eftir þessi viðskipti á Framtakssjóðurinn 12% í Icelandair og 19,7% í Vodafone. Þá jók Framtakssjóðurinn hlut sinn í N1 og á nú 45% hlut í félaginu. Einnig tók sjóðurinn þátt í hlutafjáraukningu Vodafone á árinu 2012 fyrir skráningu félagsins. Alls hefur sjóðurinn fjárfest í átta félögum frá stofnun en sex eru í núverandi eignasafni. Það eru: Advania, Icelandair, Icelandic sem skipt hefur verið upp í Icelandic Group og IG Investments, N1, Promens og Vodafone. Andvirði innleystra eigna var ráðstafað til eigenda. Annars vegar með arðgreiðslu og hins vegar með lækkun hlutafjár. Alls voru um níu milljarðar króna greiddir til hluthafa Framtakssjóðsins og hefur sjóðurinn greitt 11,7 milljarða til hluthafa sinna frá stofnun.
Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður Framtakssjóðs Íslands: „Árið 2012 var afar hagfellt fyrir Framtakssjóðinn. Sjóðurinn hefur frá stofnun átt umtalsverðan þátt í endurskipulagningu, endurfjármögnun og breyttu eignarhaldi nokkurra lykilfyrirtækja sem voru að stærstum hluta í eigu banka. Á árinu náði sjóðurinn þeim áfanga að félag í hans eigu var skráð í Kauphöll Íslands og hefur hann því sannarlega sinnt því hlutverki sem honum var ætlað. Eignasafn sjóðsins er mjög gott og færa má rök fyrir því að fjárhagsstaða sjóðsins sé enn sterkari en bókfært eigið fé gefur til kynna. Metið virði þeirra eignarhluta sem fjárfest hefur verið í er um 46,7 milljarðar, en bókfært verð sömu eigna 29 milljarðar króna. Þessi munur endurspeglar þann árangur sem náðst hefur í fjárfestingum sjóðsins.“
Frekari upplýsingar:
Hafliði Helgason, Framtakssjóði Íslands, sími 864-6350.
Upplýsingar fyrir ritstjórn:
Um Framtakssjóð Íslands slhf.
Framtakssjóður Íslands er fjárfestingarsjóður í eigu sextán lífeyrissjóða, Landsbankans hf. og VÍS. Sjóðurinn sérhæfir sig í fjárfestingum og viðskiptaþróun fyrirtækja. Hlutverk hans er að taka þátt í uppbyggingu íslensks atvinnulífs og ávaxta fjármuni í samræmi við fjárfestingastefnu sjóðsins. Stjórnarformaður Framtakssjóðs Íslands er Þorkell Sigurlaugsson og framkvæmdastjóri Brynjólfur Bjarnason.
Félag |
Eignarhlutur FSÍ |
Advania |
75% |
Icelandair |
12% |
Icelandic Group |
100% |
IG Investments |
100% |
N1 |
45% |
Promens |
49,5% |
Smellið hér til að skoða ársreikninga FSÍ slhf. og FSÍ GP