Aðalfundur Framtakssjóðs Íslands var haldinn í dag. Í máli dr. Ágústs Einarssonar, fráfarandi formanns, kom fram að hagnaður Framtakssjóðs Íslands á fyrstu fjórum mánuðum ársins nam 1,9 milljörðum króna. Á seinasta ári nam hagnaður700 milljónum króna og er heildarhagnaður sjóðsins á fyrstu 16starfsmánuðum því um 2,6 milljarðar króna. Eins og fram hefur komið gaf Ágúst Einarsson ekki kost á sér til stjórnarformennsku í Framtakssjóði áfram og mun Þorkell Sigurlaugsson nú taka við því starfi. Nýr stjórnarmaður í Framtakssjóði Íslands er Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri Össurar.
Þorkell er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hann hóf störf hjá Háskólanum í Reykjavík árið 2004 sem framkvæmdastjóri þróunar og nýsköpunar og er nú framkvæmdastjóri fjármála og fasteignareksturs HR. Þorkell starfaði hjá Eimskip, lengst af sem framkvæmdastjóri og síðan sem framkvæmdastjóri hjá Burðarási, fjárfestingafélagi Eimskips til ársins 2004. Þorkell hefur setið í stjórnum fjölda fyrirtækja og hefur yfirgripsmikla reynslu úr atvinnulífinu auk þess sem hann hefur skrifað greinar og bækur um stjórnunarmál.
Heildareignir Framtakssjóðs Íslands við árslok 2010 námu um 5,6 milljörðum króna og eigið fé var 4,9 milljarðar króna. Sjóðurinn er í eigu lífeyrissjóða auk Landsbanka Íslands og VÍS.