Framtakssjóður Íslands skilaði 700 milljónum króna í hagnað á árinu 2010. Heildareignir sjóðsins í árslok námu um 5,6 milljörðum króna.
Árið 2010 var fyrsta eiginlega starfsár Framtakssjóðs Íslands og nam hagnaður af starfseminni 700 milljónum króna. Heildareignir við árslok námu um 5,6 milljörðum króna og eigið fé í lok árs var 4,9 milljarðar króna. Við áramót var hlutur sjóðsins í Icelandair Group eina hlutabréfaeign félagsins. Í janúar 2011 samþykkti Samkeppniseftirlitið kaup Framtakssjóðsins á Vestia og bættust þá Icelandic Group, Skýrr, Vodafone, Húsasmiðjan og Plastprent í eignasafn Framtakssjóðsins. Með þeirri viðbót nemur samanlögð velta fyrirtækja í eignasafni sjóðsins nú um 300 milljörðum króna og hjá þeim starfa um 8 þúsund starfsmenn, um helmingur þeirra á Íslandi.
Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands: „Það er afar ánægjulegt að sjá afkomuna á þessu fyrsta starfsári sjóðsins en hún skýrist af þeim árangri sem náðist í rekstri Icelandair á seinasta ári. Starfsemi Framtakssjóðsins á árinu mótaðist að verulegu leyti af uppbyggingu eignasafnsins en 5 fyrirtæki bættust í eignasafn sjóðsins nú í janúar 2011. Verkefnin framundan eru að halda áfram að byggja upp eignasafnið, vinna að sölu á þeim eignum sem búið er að tilkynna að fari í söluferli og þróa önnur fyrirtæki í eigu sjóðsins áfram.“
Ársreikning Framtakssjóðs Íslands má finna hér.