14.júní 2010
FSÍ er að eignast um 30% í Icelandair Group en alls setur sjóðurinn þrjá milljarða króna í félagið. Íslandsbanki átti fyrir viðskiptin 48% hlut í Icelandair Group en með hlutafjáraukningu verður hlutur Íslandsbanka um 30% í Icelandair Group.
Framtakssjóður hefur gert bindandi samkomulag við Icelandair Group hf. þess efnis að sjóðurinn muni fjárfesta í fyrirtækinu fyrir 3 milljarða króna. Samningurinn er gerður með hefðbundnum fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar sem Framtakssjóðurinn mun láta framkvæma á fyrirtækinu.
Sjóðurinn mun skrá sig fyrir 1,2 milljörðum nýrra hluta á genginu 2,5 – alls fyrir 3 milljarða króna. Með samningnum skuldbindur Icelandair Group sig til að afla eins milljarðs króna að markaðsvirði í nýju hlutafé á sama gengi fyrir 31. júlí nk. en í heild er áætlað að selja hlutafé fyrir 5 milljarða króna.
Samkomulagið miðar við að stærstu lánveitendur Icelandair Group breyti skuldum að fjárhæð 3,6 milljarðar króna í hlutafé miðað við gengið 5, þannig að þeir munu skrá sig fyrir 720 milljón nýjum hlutum. Heildarhlutafjárhækkun mun þannig nema 8,6 milljörðum króna að söluverði.
Við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækisins er gert ráð fyrir að skuldir þess verði lækkaðar um ríflega 10 milljarða króna m.a. með yfirfærslu og sölu á tilteknum eignum sem eru ekki hluti af kjarnastarfsemi félagsins, eins og fram kom í tilkynningu til Kauphallarinnar þann 25. mars sl. Engar skuldir samstæðunnar verða afskrifaðar.
Icelandair Group hefur síðan á síðari hluta ársins 2008 unnið náið með Íslandsbanka og öðrum lánveitendum að fjárhagslegri endurskipulagningu og samningurinn markar mikilvægt skref í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins og tryggir fjárhagslega stöðu þess.