Fréttatilkynning frá Framtakssjóði Íslands
Árið 2011 var annað starfsár Framtakssjóðs Íslands og nam hagnaður af starfsemi sjóðsins 2.343 milljónum króna, samanborið við 700 milljónir króna árið áður. Heildareignir sjóðsins í árslok námu 28,2 milljörðum króna en þær voru 5,6 milljarðar á sama tíma 2010. Eigið fé í árslok var 27,5 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall 97,9%.
Eignarhlutir sjóðsins í fyrirtækjum eru færðir á kostnaðarverði nema eignarhlutir í skráðum félögum sem eru metnir á markaðsverði. Hagnaður Framtakssjóðsins á árinu skýrist því af hækkun markaðsvirðis Icelandair Group. Sjóðurinn hefur, í samvinnu við endurskoðendur félagsins, lagt mat á áætlað gangvirði þeirra eignarhluta sem fjárfest hefur verið í og er metið að það sé ekki undir 39,3 milljörðum króna. Áætlað virði miðast við niðurstöður virðisrýrnunarprófa undirliggjandi eigna.
Í ársbyrjun 2011 var hlutur sjóðsins í Icelandair Group eina hlutabréfaeign félagsins. Á árinu bættust eignarhlutir í alls 7 félögum í eignasafn Framtakssjóðsins. Þetta eru Advania, Húsasmiðjan, Vodafone, N1, Icelandic Group, Plastprent og Promens. Á árinu seldi Framtakssjóðurinn svo eignarhluti í tveimur félögum. Annars vegar 10% hlutafjár í Icelandair en sjóðurinn á eftir þau viðskipti enn 19% hlut í Icelandair Group. Hins vegar seldi sjóðurinn rekstur og eignir Húsasmiðjunnar og á nú ekki hlut í félaginu.
Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður Framtakssjóðs Íslands: „Árið 2011 var afar viðburðaríkt ár hjá Framtakssjóðnum. Sjóðurinn hefur frá stofnun átt umtalsverðan þátt í endurfjármögnun, endurskipulagningu og breyttu eignarhaldi nokkurra lykilfyrirtækja sem voru að stærstum hluta í eigu banka og hefur því sannarlega sinnt því hlutverki sem honum var ætlað. Eignasafn sjóðsins er mjög gott og færa má rök fyrir því að fjárhagsstaða sjóðsins sé enn sterkari en bókfært eigið fé gefur til kynna. Metið virði þeirra eignarhluta sem fjárfest hefur verið í er um 39,3 milljarðar, en bókfært verð sömu eigna 27,2 milljarðar króna. Þessi munur endurspeglar þann árangur sem náðst hefur í fjárfestingum sjóðsins.“
Frekari upplýsingar:
Pétur Þ. Óskarsson, Framtakssjóði Íslands, sími 863-6075.
Upplýsingar fyrir ritstjórn:
Um Framtakssjóð Íslands slhf.
Framtakssjóður Íslands er fjárfestingarsjóður í eigu sextán lífeyrissjóða, Landsbankans hf. og VÍS. Sjóðurinn sérhæfir sig í fjárfestingum og viðskiptaþróun fyrirtækja. Hlutverk hans er að taka þátt í uppbyggingu íslensks atvinnulífs og ávaxta fjármuni í samræmi við fjárfestingastefnu sjóðsins. Stjórnarformaður Framtakssjóðs Íslands er Þorkell Sigurlaugsson og framkvæmdastjóri Brynjólfur Bjarnason.
Framtakssjóður Íslands á nú eignarhluti í sjö fyrirtækjum:
Félag |
Eignarhlutur FSÍ |
Advania |
75% |
Icelandair |
19% |
Icelandic Group |
100% |
N1 |
16% |
Plastprent |
100% |
Promens |
49,5% |
Vodafone |
79% |