Framtakssjóður Íslands hefur selt 5% hlutafjár í Icelandair Group, alls 250 milljón hluti. Meðalverð á hlut var 13,1 krónur og nemur heildarsöluvirði hlutafjár því 3.275 milljónum króna. Eftir viðskiptin á Framtakssjóður Íslands um 350 milljón hluti í Icelandair Group, eða um 7% hlutafjár.
Framtakssjóðurinn samdi um kaup á um 30% hlut í Icelandair Group um mitt ár 2010. Alls keypti sjóðurinn um 1450 milljón hluti i tveimur útboðum fyrir samtals um 3,6 milljarða króna. Andvirði sölunnar rennur beint til lífeyrissjóðanna og annarra eigenda Framtakssjóðsins í samræmi við skilmála sjóðsins.
Umsjón með sölu hlutafjárins hafði Straumur fjárfestingabanki.