20. ágúst 2010
Framtakssjóður Íslands hefur keypt eignarhaldsfélagið Vestia af Landsbankanum. Þau félög sem fylgja Vestia til Framtakssjóðs Íslands eru eftirfarandi sjö fyrirtæki, en hjá þeim vinna um 6.000 manns:
- Icelandic sem áður hét SH og er alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki með samtals 30 dótturfélög og starfsemi í 14 löndum.
- Teymi sem er eignarhaldsfélag á sviði fjarskipta og upplýisngatækni og á eftirfarandi félög, Vodafone, Skýrr, EJS og HugurAX.
- Húsasmiðjan sem er blóma- og byggingavöruverlsun með 16 verslanir um allt land.
- Plastprent sem er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu plastbúða og plastfilma.
Framtakssjóður Íslands greiðir Landsbankanum samkvæmt samkomulagi 19,5 milljarða króna fyrir Vestia. Landsbankinn mun jafnframt kaupa 30% hlut í sjóðnum. Hlutafé Framtakssjóðsins verður væntanlega tvöfaldað úr 30 milljörðum króna í 60 milljarða. Samkomulagið er með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakannanna og samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Sameiginlegt markmið bankans og sjóðsins er endurreisn atvinnulífsins og telja forsvarsmenn félaganna kaupin mikilvægt skref á þeirri leið.
Fyrir Landsbankann eru þessi kaup mikilvægt skref meðal annars með tilliti til samkeppnissjóðnarmiða þar sem eignarhald bankans á stórum fyrirtækjum var tímabundin neyðarráðstöfun vegna erfiðra aðstæðna í íslensku efnahagslífi.
Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans segir;
,,Þetta er góður samningur fyrir Landsbankann, hvernig sem á það er litið og góður samningur fyrir þau fyrirtæki sem Vestia á. Þau fá nú þann trausta langtíma bakhjarl sem þau þurfa. Bankar eru ekki heppilegir fjárfestar til lengri tíma og eyða þurfti óvissu um eignarhald eins skjótt og auðið var. Með þvi að bindast Framtakssjóði Íslands sterkum böndum mun Landsbankinn gegna mjög veigamiklu hlutverki í endurreisn atvinnulífsins með öðrum hætti en verið hefur fram til þessa og bankinn fagnar því tækifæri sem þessi samningur veitir honum."
Finnbogi Jónsson framkvæmdastjóri FSÍ segir;
,,Samstarfið við Landsbankann gerir mögulegt að efla fjárhagslega getur Framtakssjóðsins umtalsvert frá því sem nú er. Með samkomulaginu eignast sjóðurinn öflug fyrirtæki og fær til liðs við sig sterkan hluthafa til að takast á við frekari uppbyggingu. Það eru sex mánuðir frá því að sjóðurinn hóf formlega starfsemi og er hann nú þegar komin með dreift og sterkt eignarsafn. Við vonumst til þess að þegar á næstu misserum verði hægt að skrá fleiri af þessum fyrirtækjum á almennan hlutabréfamarkað og þannig gefa almenningi kost á að eignast beint hlut í þeim."