Reykjavík, 21. apríl 2017
Stjórn Icelandic Group hefur ákveðið að hefja söluferli á dótturfélagi sínu Seachill í Bretlandi.
Seachill er leiðandi framleiðandi kældra fiskafurða inn á breska smásölumarkaðinn. Félagið hefur skapað sér sterka stöðu á markaðnum þar sem það býður upp á heildarlausnir fyrir viðskiptavini sinna.
Seachill hefur verið í vexti frá stofnun þess árið 1998 og er nú einn stærsti framleiðandi kældra fiskafurða í Bretlandi. Félagið er með aðsetur í Grimsby þar sem það starfrækir verksmiðju sem hefur verið endurnýjuð að miklu leyti síðustu árin. Sjálfbærni er mikilvæg fyrir Seachill og vinnur félagið eingöngu með MSC-vottuðum birgjum en til að öðlast slíka vottun þarf að sýna fram á vistvænar veiðar, styrkleika fiskistofna, ábyrga og sjálfbæra fiskveiðistjórnun.
Seachill er einnig stoltur eigandi af The Saucy Fish Co. sem hefur gjörbylt skynjun breskra neytenda á fiskafurðum og hefur ört vaxandi alþjóðlegt orðspor. The Saucy Fish Co. hefur fjórum sinnum hlotið viðurkenningu frá CoolBrand í Bretlandi en viðurkenningin er veitt þeim sem þykja skara framúr á sínu sviði.
Tekjur Seachill árið 2016 námu um 266 milljónum punda (37,5 milljörðum króna) og EBITDA (hagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir) var um 10,4 milljónir punda (1,5 milljarður króna). Starfsmenn félagsins eru um 750 talsins.
Íslandsbanka og Oghma Partners hefur verið falin umsjón með söluferlinu. Áhugasömum aðilum er bent á að hafa samband í gegnum netfangið tim.owen@oghmapartners.com
Um Icelandic Group:
- Framtakssjóður Íslands (FSÍ) er eigandi að 100% hlutafjár í Icelandic. FSÍ er fjárfestingarsjóður í eigu sextán lífeyrissjóða, Landsbankans og VÍS.
- Icelandic Group er eigandi vörumerkjanna „Icelandic“ og „Icelandic Seafood“ og heldur utan um markaðssetningu vörumerkjanna ásamt þjónustu gagnvart leyfishöfum og öðrum framleiðendum á Íslandi. Helstu samstarfsaðilar félagsins eru Solo Seafood og Highliner Foods sem selja hágæða sjávarafurðir undir vörumerkinu Icelandic Seafood. Afurðir seldar undir vörumerkinu Icelandic Seafood lúta ströngum gæðakröfum og gæðaeftirliti sem er grunnurinn að þeirri sterku stöðu sem vörumerkið hefur á mörkuðum.
- Solo Seafood, eigandi Ibérica á Spáni, er einn helsti sölu- og dreifingaraðili á léttsöltuðum þorski frá Íslandi en Ibérica selur sjávarafurðir til meira en 4.000 viðskiptavina í fimm löndum í Suður-Evrópu.
- Kanadíska fyrirtækið Highliner Foods, sem er eitt af stærstu fyrirtækjum í N-Ameríku í framleiðslu sjávarafurða er leyfishafi vörumerkisins og selur frosnar sjávarafurðir“ inn á hótel og veitingahús.