Icelandic Group hefur undirritað samning um sölu á Seachill, dótturfélagi sínu í Bretlandi. Kaupandi
er breska matvælafyrirtækið Hilton Food Group. Heildarvirði Seachill í viðskiptunum nemur um 12
milljörðum króna (GBP 84 milljónir). Ráðgert er að félagið verði afhent nýjum eiganda þann 7.
nóvember 2017.
Söluferlið á Seachill var auglýst í apríl síðastliðnum. Mikill áhugi var á félaginu þar sem fjölmargir
alþjóðlegir aðilar tóku þátt í ferlinu og lýstu yfir vilja til kaupanna. Niðurstaða ferlisins var að ganga til
samninga við Hilton. Umsjón með söluferlinu og ráðgjöf til seljanda var í höndum Oghma Partners og
Íslandsbanka. Logos veitti seljanda lögfræðiráðgjöf í tengslum við viðskiptin.
„Með sölunni á Seachill er stórum áfanga náð í þeirri vegferð sem hófst árið 2015 þegar stefnan var
tekin að selja Icelandic Group í einingum frekar en í heilu lagi. Samstarf og samlegðaráhrif milli
félaga samstæðunnar var nánast engin. Með þessari ákvörðun tókst að auka virði seldra eininga
umtalsvert og nemur söluandvirðið alls um 20 milljörðum króna. Þessir fjármunir skila sér beint til
eigenda okkar sem eru að meirihluta íslenskir lífeyrissjóðir sem er ánægjulegt“, segir Herdís Dröfn
Fjeldsted stjórnarformaður Icelandic Group og framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands.
Salan á Seachill kemur í kjölfar sölu Icelandic Group á öðrum helstu dótturfélögum samstæðunnar. Á
síðustu 18 mánuðum hefur Icelandic þannig gengið frá sölu á Gadus í Belgíu, Ný-Fiski í Sandgerði,
Ibérica á Spáni og Icelandic í Asíu. Kaupendur að þeim síðarnefndu voru allt íslensk félög sem
tengjast framleiðslu og sölu í sjávarútvegi með einum eða öðrum hætti. Eftir þessa sölu stendur eftir
félagið Icelandic Trademark Holding, eigandi vörumerkjanna Icelandic og Icelandic Seafood, í eigu
Icelandic Group. Icelandic Trademark Holding heldur utan um markaðssetningu vörumerkjanna
ásamt þjónustu gagnvart leyfishöfum og öðrum framleiðendum á Íslandi. Fleiri samstarfsaðilar munu
bætast í hópinn á komandi mánuðum en áhersla er lögð á að auka útflutning og efla hróður og
ímynd hágæða íslenskra sjávarafurða og tengdra vara á alþjóðlegum vettvangi.
Framtakssjóður Íslands hefur greitt alls um 75 milljarða króna til hluthafa samanborið við innborgað
hlutafé upp á 43 milljarða króna. Eftirstandandi fjárfestingar sjóðsins, þar með taldar peningalegar
eignir, eru metnar á 15 milljarða króna. Ársávöxtun sjóðsins reiknuð til dagsins í dag nemur 23% á
ári,
Nánari upplýsingar veitir Sara Lind Þrúðardóttir í síma 852 8804 eða í gegnum netfangið
Sjá frekari upplýsingar á næstu síðu:
Um Seachill:
• Seachill er umfangsmikill framleiðandi á kældum og frosnum sjávarafurðum sem og tilbúnum
sjávarréttum til stórra smásölukeðja í Bretlandi. Seachill á einnig vörumerkið ‚The Saucy Fish
Co.‘ sem hefur verið byggt upp á breska neytandamarkaðinum og í fleiri löndum.
• Tekjur Seachill árið 2016 námu um 37 milljörðum króna og starfsmenn eru um 750 talsins.
Félagið verður rekið sem sjálfstæð eining hjá Hilton eftir viðskiptin og munu stjórnendur
Seachill og aðrir lykilstarfsmenn halda áfram störfum fyrir félagið.
• Óverulegt magn af íslenskum fiski er selt í gegnum verksmiðjur Seachill eða einungis um 5%
alls af heildarhráefni félagsins.
Um Icelandic Group:
- Framtakssjóður Íslands (FSÍ) er eigandi að 100% hlutafjár í Icelandic Group. FSÍ er
fjárfestingarsjóður í eigu fimmtán lífeyrissjóða, Landsbankans og VÍS. - Icelandic Group er eigandi vörumerkjanna „Icelandic“ og „Icelandic Seafood“ og heldur utan
um markaðssetningu vörumerkjanna ásamt þjónustu gagnvart leyfishöfum og öðrum
framleiðendum á Íslandi. Helstu samstarfsaðilar félagsins eru Solo Seafood og Highliner Foods
sem selja hágæða sjávarafurðir undir vörumerkinu Icelandic Seafood. Afurðir seldar undir
vörumerkinu Icelandic Seafood lúta ströngum gæðakröfum og gæðaeftirliti sem er grunnurinn
að þeirri sterku stöðu sem vörumerkið hefur á mörkuðum. - Solo Seafood, eigandi Ibérica á Spáni, er einn helsti sölu- og dreifingaraðili á léttsöltuðum
þorski frá Íslandi en Ibérica selur sjávarafurðir til meira en 4.000 viðskiptavina í fimm löndum í
Suður-Evrópu. - Kanadíska fyrirtækið Highliner Foods, sem er eitt af stærstu fyrirtækjum í N-Ameríku í
framleiðslu sjávarafurða er leyfishafi vörumerkisins og selur frosnar sjávarafurðir inn á hótel
og veitingahús.
Um Hilton Food Group:
- Hilton er leiðandi framleiðandi á kjötafurðum og er mikilvægur birgi alþjóðlegra
smásöluverslana. Vörur frá Hilton eru seldar í stórverslunum 14 landa. -
Félagið var stofnað 1994 í Huntingdon í Bretlandi og hefur síðan byggt upp sex úrvals
kjötvinnslur í fleiri löndum Evrópu. Hjá félaginu starfa ríflega 2.800 manns. - Hlutabréf í Hilton eru skráð á aðallista Kauphallarinnar í London