Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans, sem annast söluferli Húsasmiðjunnar í umboði Framtakssjóðs Íslands, hefur farið yfir þau tólf tilboð sem bárust í fyrirtækið og einstakar einingar þess. Nokkrir aðilar voru valdir til áframhaldandi viðræðna og hafa þeir fengið aðgang að frekari gögnum til að framkvæma áreiðanleikakönnun á félaginu. Þessir aðilar hafa nú frest til 31. október til að skila inn skuldbindandi tilboðum en ákveðið var að framlengja frestinn um tvo daga, til miðvikudags 2. nóvember. Í kjölfarið verða ákvarðanir teknar um framhaldið.Húsasmiðjan var stofnuð árið 1956 og er eitt af stærstu þjónustu- og verslunarfyrirtækjum á Íslandi. Fyrirtækið er leiðandi í sölu á byggingavörum og starfrækir 16 verslanir undir eigin nafni um allt land. Að auki rekur fyrirtækið 9 verslanir undir merkjum Blómavals, Ískrafts og heildverslunar HGG.