
Forsvarsmenn Icelandic Group ehf. afhentu í dag forsætisráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, til eignar fyrir hönd íslensku þjóðarinnar vörumerkin Icelandic og Icelandic Seafood, að viðstöddum Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra og Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Vörumerkin eru í eigu Icelandic Trademark Holding ehf. sem heldur utan um skráningu, vernd og notkun vörumerkjanna og tryggir að þau séu nýtt í tengslum við sölu og markaðssetningu íslenskra afurða og þjónustu. Markmiðið er að vörumerkin nýtist sem best í þágu íslensks atvinnulífs á breiðum grundvelli til framtíðar.
Icelandic Trademark Holding (ITH), sem heldur utan um Icelandic vörumerkin og rekstur þeirra er nánast eina eign Icelandic Group ehf. Með því að afhenda Ríkissjóði Íslands alla hluti í ITH er lokið eiginlegri starfsemi Icelandic Group ehf. Nú er horft til þess að íslensk fyrirtæki hafa möguleika á samstarfi við ITH sem miði að því að kynna vöru eða þjónustu undir merkjum Icelandic sem styrkt geti frekar ímynd íslenskra afurða og þjónustu af háum gæðum með sjálfbærni að leiðarljósi. Í dag er ITH með nytjaleyfissamninga við Solo Seafood, eiganda Ibérica á Spáni, High Liner Foods í Kanada og íslenska fyrirtækið Margildi ehf. Margildi mun hefja kynningarstarf á nýrri vöru undir merkjum Icelandic í Bandaríkjunum á næstu misserum.
Framtakssjóður Íslands ehf. (FSÍ), móðurfélag Icelandic Group ehf. hefur fyrir stuttu lokið sinni starfsemi. Framtakssjóðurinn fjárfesti í 9 fyrirtækjum á þeim árum sem hann var starfræktur og heildarhagnaður hluthafa af starfsemi sjóðsins um 47 milljarðar króna og var árleg innri ávöxtun sjóðsins um 22,6%. Í ávarpi Þorkels Sigurlaugssonar stjórnarformanns FSÍ kom fram að starfsemi sjóðsins hafi verið árangursrík og vonaðist hann eftir því vörumerkin Icelandic og Icelandic Seafood fái að vaxa og dafna íslensku þjóðinni til heilla.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði gesti í Safnahúsinu og sagði að gjöf Icelandic Group væri rausnarleg og að í vörumerkinu fælist gríðarleg verðmæti. „Það er mikilvægt að hlúa að þessu vörumerki áfram, efla og styrkja jákvæða ímynd íslenskra afurða, hvort heldur sem er í formi vöru, þjónustu eða íslenskrar menningar. Það verður nú hlutverk stjórnvalda að sinna þessu verðmæti og tryggja að það verði ævarandi eign íslenska ríkisins,“ sagði forsætisráðherra jafnframt.
„Það er mjög ánægjulegt að afhenda íslensku þjóðinni þessi dýrmætu vörumerki á aldarafmæli fullveldisins. Íslensk fyrirtæki munu þannig geta tengt sig við uppruna sinn og notið góðs af jákvæðri ímynd landsins. Þannig mun Icelandic þjóna þeim tilgangi að auka útflutningsverðmæti og þar með treysta efnahagslegar undirstöður samfélagsins til lengri tíma litið,“ sagði Herdís Fjeldsted, fráfarandi framkvæmdastjóri Framtakssjóðsins og formaður stjórnar Icelandic Group, við athöfnina í Safnahúsinu í dag.
Sara Lind Þrúðardóttir framkvæmdastjóri ITH kom inn á það í erindi sínu í Safnahúsinu að það fælist mikil tækifæri í því fyrir íslenskt atvinnulíf að fylkjast undir merkjum Icelandic í kynningar- og markaðsstarfi á erlendri grundu enda ímynd Íslands tengt hreinleika og einstakri fegurð.
Nánari upplýsingar veitir:
Þorkell Sigurlaugsson stjórnarformaður Framtakssjóðs Íslands í síma 6206222
og Sara Lind Þrúðardóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Trademark Holding í síma 8528804.
Nánari upplýsingar um FSÍ eru hér: https://framtakssjodur.is/um-framtakssjod-islands/um-sjodinn/ og um vörumerkin hér: https://www.icelandic.is